Smoke N´Go
Klefar fyrir tóbaksreykingafólk.
Einn smók og aftur til starfa. Það er hugmyndin bak við Smoke'N Go reykingaklefana. Frístandandi klefar sem auðvelt er að staðsetja innanhúss. T.d innan vinnustaða til að stytta reykingatíma fólks og bæta ímynd fyrirtækja, það er jú hvimleitt að sjá vinnustaði í dag þar sem starfsfólk húkir í öllum veðrum utandyra og reykir. Reykingaklefarnir er mjög áhrifarík aðferð til að fjarlægja allan reyk og alla óþarfa lykt. Klefarnir eru sérstaklega fallega hannaðir til að falla vel inn í umhverfið. Möguleiki er að fá ýmsar útfærslur og aukahluti eins og upplýst auglýsingaskilti, fótaskemil og stuðningsplötu við bak. Klefarnir eru með glerhurð sem eru með sjálfvirkum lokunarbúnaði. Fáanlegir í nokkrum stærðum; 4-5, 6-7,12-14 og 28 manna. Einstakt fjölsíu kerfi, vottað TÜV, ECN , ISO 9001/9002 og CE, samanstendur af forsíu, "ElectroMax" síu, "HEPA" síu og tveimur kolefnishlöðnum síum (til að fjarlægja bæði gas og ólykt). Grunngerð af klefunum kemur með gagnsæjum veggeiningum með halogen lýsingu. Möguleiki á nokkrum litasamsetningum eftir óskum kaupanda. Lyktarlausir öskubakkar sem taka við nokkrum hundruðum stubba. Skynjari sem ræsir og slekkur lofthreinsun sjálfkrafa. Ýta/toga kerfi sem kemur í veg fyrir reyksmit.
Síar og hreinsar: 99,99% af öllum hættulegum tóbaksgufum og efnum (t.d. nicotine og formaldehyde).
Nokkur Lykilatriði
- Virkni lofthreinsunar: 99,99% af öllum hættulegum tóbaksgufum og efnum (t.d. nicotine og formaldehyde).
- Einstakt fjölsíukerfi
- Gagnsæ bygging
- Frístandandi sjálfstæð eining
- Nokkrar stærðir
- Sjálvirkni
- Ýta/toga . kerfi sem kemur í veg fyrir reyksmit.
- Lokast sjálfkrafa
- Lyktarlausir öskubakkar
- Öskubakki tekur allt að 8000 stubba
- Tengist hefðbundnu rafmagni 230V/50hz
- Margir valkostir: upplýst auglýsingaskilti, fótaskemil og stuðningsplata við bak
Ítarefni
Tæknilegar upplýsingar
SmokeN Go Mezzo
4-5 manna klefar
2200 x 1265 x 2165 mm
(B x D x H)
SmokeN Go Espace
6-7 manna klefar
2200 x 1765 x 2165 mm
(B x D x H)
SmokeN Go Plaza
12-14 manna klefar
3525 x 2200 x 2165 mm
(B x D x H)